skaftfell dagskrá
sýningarsalur bístró / vesturveggur
Dieter Roth listamannaíbúð
 
myndir af sýningarrýminu
 
umsóknareyðublað
  
 
 
Á þriðju hæð Skaftfells er falleg og björt íbúð/vinnustofa sem leigist fræði- eða listamönnum allan ársins hring. Hún er 80 fermetrar og er búin öllum helstu nauðsynjum. Íbúðin/vinnustofan skiptist í tvö svefnherbergi með sitthvoru hjónarúminu, baðherbergi með sturtu og vinnurými. Í vinnurýminu er eldunaraðstaða, borðbúnaður, ísskápur, eldhúsborð og stólar, ljósaborð, borðplötur, búkkar ofl. Einnig er þar tvíbreiður dívan sem nýtist jafnt sem sófi eða rúm. Afnot af tölvu, interneti, skanna, prentara og síma eru til staðar. Listamenn geta fengið aðgang að verkstæðum bæjarins s.s trésmíðaverkstæði, stálsmiðju, netagerð, lítilli prentsmiðju, handverksmönnum svo og lífskúnstnerum.
Ef fræði- eða listamaður hyggst vinna að verkefni tengdu fræði- eða listgrein sinni er hægt að semja við stjórn hússins um að viðkomandi skilji e.t.v. eftir sig verk, haldi sýningu, fyrirlestur, tónleika eða vinni að námskeiði eða öðru því er um semst við stjórn Skaftfells, það er þó ekki skilyrði.
Vinnustofan/íbúðin leigist frá tveimur vikum til sex vikna dvalar og kostar ein vika 4.750 krónur. Borga þarf allt að 9.500 krónur í staðfestingargjald sem samsvarar tveggja vikna leigu.
Hægt er að skoða panorama mynd af íbúðinni hér til hliðar. Myndin krefst quicktime og þú getur nálgast það hér.
Umsókn sendist til Skaftfells merkt:
Skaftfell, menningarmiðstöð
Austurvegur 42
710 Seyðisfirði
Upplýsingar gefur umsjónarmaður í síma 472 1632. Einnig er hægt að fá upplýsingar með því að senda fyrirspurn í tölvupósti á netfangið skaftfell@skaftfell.is
 

 

símanúmer 472-1632    netfang: skaftfell@skaftfell.is    heimilisfang: Austurvegur 42, 710 Seyðisfirði