| |
| bístró |
|
vesturveggur |
| |
|
|
Á jarðhæð hússins
er bístró menningarmiðstöðvarinnar.
Þar inni ríkir afslöppuð og heimilisleg
stemning en þrátt fyrir gróft yfirbragð
fást þar dýrlegar veitingar á
heimsmælikvarða. Þar er hægt að
kíkja í bækur og blöð og
komast á internetið og fá sér
að borða á meðan bístróið
er opið.
Bístróið er opið alla daga yfir sumartímann og eitthvað
fram eftir vetri og þá fyrst og fremst í
tengslum við viðburði sem húsið
stendur fyrir. Síminn er 472 1633 |
|
Gallerí Vesturveggur er staðsett á jarðhæð Skaftfells
eða í Bístrói
menningarmið-stöðvarinnar á Seyðisfirði. Markmið
Vesturveggsins er að gefa ungum
myndlistar-mönnum tækifæri til að sýna verk sín
á opinberum vettvangi og að gefa
fólki fyrir utan höfuðborgarsvæðið tækifæri
til að kynna sér þá grósku sem á sér
stað í myndlist yngstu kynslóðarinnar á Íslandi.
Jafnframt er Vesturveggurinn
gott innlegg inn í menningarlíf austurlands og gefur þannig
Skaftfelli, miðstöð
myndlistar á austurlandi, tækifæri á að auka sérstöðu
sína enn frekar.
Sýningartími hverrar sýningar er stuttur eða aðeins
þrjár vikur því tilgangurinn
er að kynna einn ungan listamann í hverjum mánuði á
meðan Bístróið er opið. |
| |
|
|
 |
|
|