 |
| |
28 feb 2009 |
KIPPUHRINGUR Bergdís H. Guðvarðardóttir, E. Silfá H. Þorgrímsdóttir, Haraldur Sigmundsson, Kolbrún Ýr Einarsdóttir, Malina Cailean, Marie-Louise Andersson, Steven |
| |
13 mar 2009 |
Sandra Mjöll Jónsdóttir Aðlögun |
| |
22 mar 2009 |
Eva Olsson & Jonas Nilsson 700.is Hreindýraland 2009 |
| |
11 apr 2009 |
Ben Kinsley & Jessica Langley The Thirteenth Day |
| |
15 apr 2009 |
Skólaverkefni vetrarins 2008 - 2009 Fræðakistillinn |
| |
20 jún 2009 |
Kristján Steingrímur Jónsson |
| |
28 nóv 2009 |
Garðar Eymundsson |
| |
|
|

KIPPUHRINGUR : Bergdís H. Guðvarðardóttir, E. Silfá H. Þorgrímsdóttir, Haraldur Sigmundsson, Kolbrún Ýr Einarsdóttir, Malina Cailean, Marie-Louise Andersson, Steven 28 feb 2009 - 05 apr 2009 |
Kippuhringur er sýning sex nemenda Listaháskóla Íslands, auk tveggja gestanemenda frá Listaháskólanum Valand í Gautaborg.
Nemendurnir hafa síðastliðnar tvær vikur dvalið á Seyðisfirði og unnið þar að sýningunni í samstarfi við fyrirtæki og einstaklinga í bænum.
Dvölin á Seyðisfirði mun óneitanlega hafa einhver áhrif á verk nemenda þar sem að ferðin hefur verið áhrifamikil. Nemendur hafa skoðað verkstæði bæjarins, Tækniminjasafnið og farið á sjóinn og veitt sér í soðið. Ýmsir listamenn bæjarins hafa veitt nemendum aðstoð og ráðleggingar.
Sýningarstjóri er Björn Roth og opnar sýningin í Skaftfelli – miðstöð myndlistar á Austurlandi á Seyðisfirði, þann 28. febrúar næstkomandi kl. 16:00.
Sýningin er opin miðvikudaga til fimmtudaga frá kl.13 – 17 og föstudaga til sunnudaga frá kl.13 – 20 og eru allir velkomnir.
|
| |
|
| |
Sandra Mjöll Jónsdóttir : Aðlögun 13 mar 2009 - 13 apr 2009 |
Bókabúðin - verkefnarými
Sandra Mjöll Jónsdóttir er fætt og uppalin á héraði og er nýlega útskrifuð með M.A. gráðu í ljósmyndun frá University of the Arts í London.
Hugmyndin að baki seríunuar Aðlögun er komin frá einni setningu sem fjallar um hvernig manneskjan er í rými og markar sér staðinn. Hér er líkaminn berskjaldaður en samt sterkur þar sem ekkert er hulið aðeins formið og líkamstjáningin er til staðar, í rými sem er skapað af fólki fyrir fólk.
Vesturveggurinn hefur nú verið starfræktur frá árinu 2003. Sýningar á honum hafa verið í fremur föstum skorðum en í ár verða gerðar talsverðar breytingar á því. Til viðbótar við þá aðstöðu sem Vesturveggurinn hefur haft í bistrói Skaftfells mun nú nýtt húsnæði á vegum Skaftfells, gamla bókabúðin, verður hluti af þeim vetvangi. Ekki verður ráðin einn sýningarstjóri fyrir VV eins og verið hefur heldur mun sýningastjórn vera í höndum framkvæmdastjóra, eða þeirra sem hann kallar til hverju sinni. Stefnt er á að hafa dagskránna ögn liðugri en áður með fjölbreyttar uppákomur; sýningar, tónleika, vinnustofu o.fl. Dagskrá VV & bókabúðarinnar verður skiplögð í samræmi við þarfir líðandi stundar og mun verða vettvangur augnarbliksins. Þó verða sömu áherslur og áður; ungir listamenn, framsæknar listir og hæfileikafólk á heimasvæðinu. Gera má ráð fyrir 15 - 20 verkefnum yfir árið. |
| |
|
| |
Eva Olsson & Jonas Nilsson : 700.is Hreindýraland 2009 22 mar 2009 - 29 mar 2009 |
Opnun sunnudaginn 22.mars kl.20; sýningarstjóraspjall á undan:
Eva Olsson & Jonas Nilsson / AVS, Art Video Screening (Örebro Festival) (SWE)
Samtals 51 mínúta.
14 myndir. Eftir listamenn frá: Hollandi, Svíþjóð, Póllandi, Frakklandi, Bandaríkjunum og Bretlandi. Þau eiga bæði verk þar.
www.artvideoscreening.se
Videó- og kvikmyndahátíðin www.700.is Hreindýraland verður haldin í fjórða sinn á Fljótsdalshéraði og nágrenni 21. – 28.mars næstkomandi. Þessi tilrauna-kvikmyndalistahátíð verður haldin með nýju sniði að þessu sinni, þar sem ákveðið var að nú skyldi sjónum beint að videó-innsetningum. Því munu 7 listamenn, eða pör, vinna slíkar innsetningar í Sláturhúsið á Egilsstöðum, en einnig hafa verið valin 4 prógrömm frá gestasýningastjórum sem verða sýnd í nágrenninu meðan hátíðin stendur; á Eiðum, í Skaftfelli á Seyðisfirði, á Skriðuklaustri og í Þekkingarsetri Austurlands á Egilsstöðum. Fyrirhugað er að halda stærri hátíð (með fleiri listamönnum, námskeiðum o.s.frv. eins og verið hefur til þessa) annaðhvert ár, en hafa hana lágstemmdari með meiri innsetningum hitt árið.
|
| |
|
| |
Ben Kinsley & Jessica Langley : The Thirteenth Day 11 apr 2009 - 07 jún 2009 |
|
| |
|
| |
Skólaverkefni vetrarins 2008 - 2009 : Fræðakistillinn 15 apr 2009 - 15 sep 2009 |
Fræðakistillinn er samstarfsverkefni Skaftfells og Tækniminjasafns Austurlands og er jafnt liður í safnakennslu Tækniminjasafnsins og fræðslustarfi Skaftfells. Um er að ræða farandverkefni fyrir eldri bekki grunnskóla en verkefnið mun einnig nýtast öðrum aldurshópum. Fræðakistillinn er ferðakistill sem inniheldur safn verkefna sem nemendur að leysa af hendi með aðstoð kennara þar sem unnið er með undur og dásemdir tækni, myndlistar og mannshugans.
Tengslin á milli lista og vísinda eru megin þema verkefnisins. Fjallað verður lauslega um helstu uppgötvanir og uppfinningar sem nútíma rafeindatækni byggist á og hlut skapandi hugsunar og uppgötvana í myndlist og vísindum. Efnið byggist á nokkrum litlum verkefnum þar sem unnið verður með raunverulegan búnað og einnig verður notast við myndir og texta til skýringar. Gert er ráð fyrir að kistillinn muni skýra sig sjálfur og þarfnist ekki mikilla leiðbeininga. Kistillinn er ekki stærra en svo að vel rúmist í skottinu á venjulegum fólksbíl. Kistillinn er ekki þyngri en svo að einn fullorðinn maður eða tvö hálfstálpuð börn geta borið hann. Þegar kistillinn er opnaður kemst hann komast fyrir á gólffleti sem er hið minnsta 3 sinnum 1.5 metrar með venjulega lofthæð ( getur vel notað stærra pláss einnig). Ekki er þörf á neinum aukahlutum né sérþekkingu til þess að vinna með kistilinn en gert er ráð fyrir því að notendur hafi aðgang að 240 volta riðstraum.
Kistillinn er hannaður í smiðju Tækniminjasafni Austurlands. Skaftfell tekur þátt í hönnun kistilsins og hefur umsjón með myndlistarþætti hans. Pétur Kristjánsson, safnstjóri Tækniminjasafns Austurlands og myndlistarmaður, Helgi Örn Pétursson, myndlistarmaður og forvörður, Kristín Dýrfjörð, emilio regio sérfræðingur, Hildigunnur Birgisdóttir, myndlistarmaður og kennari við Myndlistaskólann í Reykjavík, Bjarni Sigurbjörnsson, myndlistarmaður og smiður og Pétur Magnússon, myndlistarmaður og smiður komu öll að hönnun, þróun og smíði kistilsins.
|
| |
|
| |
Kristján Steingrímur Jónsson : 20 jún 2009 - 31 ágú 2009 |
| |
| |
|
| |
Garðar Eymundsson : 28 nóv 2009 - 31 jan 2010 |
| |
| |
|
| |
|